Innlent

Hetjulundur krabbameinssjúkra barna vígður

Á myndinni má sjá fulltrúa SKB og Á allra vörum og séra Pálma, auk arkitekts, verktaka og verkfræðings, sem allir gáfu vinnu sína, og loks landeigandann sem gaf lóðina.
Á myndinni má sjá fulltrúa SKB og Á allra vörum og séra Pálma, auk arkitekts, verktaka og verkfræðings, sem allir gáfu vinnu sína, og loks landeigandann sem gaf lóðina. Mynd/Á allra vörum
Hvíldarheimilið Hetjulundur var vígt í gær af Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna en heimilið er fyrst og fremst hugsað sem athvarf fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra á meðan á erfiðleikum þeirra stendur. Auk vígslunnar var heimilið formlega tekið í notkun í gær. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá góðgerðarfélaginu Á allra vörum og Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.

Það var séra Pálmi Matthíasson sem blessaði húsið að viðstöddum forsvarsmönnum styrktarfélagsins, Á allra vörum, styrktaraðilum, verktökum og félagsmönnum. Á allra vörum stóð fyrir sinni annarri landssöfnun árið 2009 með sölu á glossum og beinni sjónvarpsútsendingu en sú söfnun var tileinkuð hvíldarheimili fyrir SKB. Ár er síðan fyrsta skóflustungan var tekin að húsinu en það stendur í landi Ketilsstaða í Holta- og Landssveit.

„Hér er að rætast stór draumur og það er ólýsanlegt fyrir okkur stöllur „Á allra vörum" að sjá hann verða að veruleika. Það er hægt að áorka flestu ef viljinn er fyrir hendi og samtaka kraftar taka sig saman", sergir Gróa Ásgeirsdóttir ein forsvarskvenna á „Á allra vörum".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×