Innlent

Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur endurvakin

Hjólreiðar efla heilsuna
Hjólreiðar efla heilsuna Mynd úr safni
Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur hefur verið endurvakin frá gömlum glæðum og verður haldin laugardaginn 9. júlí á Hvolsvelli.

„Mikil heilsuefling hefur verið á meðal landans að undanförnu og ekki síst hér á þessu svæði. Það er gaman að geta tekið þátt í því og tilvalið að efna til þessarar hátíðar hér, þar sem á árum áður voru haldin Íslandsmeistaramót í hjólreiðum" segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra.

Efnt verður til keppni á götuhjólum og verður hægt að velja um þrjár vegalengdir, frá Olís Norðlingaholti í Reykjavík að Hvolsvelli um Þrengslaveg um 110 km, frá Byko Selfossi að Hvolsvelli um 48 kílómetra, og 14 kílómetra frá Reykjagarði Hellu að Hvolsvelli.

Keppnin er unnin í samráði við lögregluumdæmin og verður keppendum fylgt eftir af lögreglu og björgunarsveitarmönnum til að tryggja öryggi þeirra.

Að lokinni keppni á lengri leiðum hefst fjölskylduskemmtun í miðbæ Hvolsvallar, þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í leikjum og keppnum. Hjólafærni verður á staðnum og fjölskyldan getur hjólað saman í fjölskylduhjólreiðahringnum síðar um daginn.

Skráning í keppnina hefst á hádegi í dag, mánudag 27. júní og stendur fram á keppnisdag. Skráningin fer fram á netinu eða í gegnum upplýsingamiðstöðina Hvolsvelli. Allar nánari upplýsingar um keppnina og skráningu er að finna á vef Rangárþings eystra, og viðburðarsíðu á Facebook undir Tour de Hvolsvöllur.

Fjölmargir aðilar og fyrirtæki koma að keppninni og hátíðinni að þessu sinni og er hún unnin í samvinnu við hjólreiðanefnd íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Hjólreiðafélag Reykjavíkur, Hjólafærni, Byko og Intersport, sveitarfélagið Rangárþing eystra og fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×