Innlent

Björgunarvestaþjófa leitað

Vestmannaeyjar. Myndin er úr safni.
Vestmannaeyjar. Myndin er úr safni.
Brotist var inn í bílskúr við Kirkjubæjarbraut í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Þjófurinn stal fjórum björgunarvestum.

Tvö vesti eru gul, eitt þeirra er rautt og það fjórða er blátt. Talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað á tímabilinu 10. júní til 16. júní.

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um þjófnaðinn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×