Innlent

Vopnað rán í Reykjavík - ræningjans leitað

Vopnað rán var framið í sólarhringsverslun í vesturhluta Reykjavíkur um klukkan hálf fjögur í nótt. Þjófurinn, sem var grímuklæddur, ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði á brott með sér eitthvað af peningum úr peningakassanum.

Ræninginn var horfinn á brott þegar lögregla kom á vettvang og er hans nú leitað. Afgreiðslufólkið sakaði ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×