Innlent

Gekk í flasið á innbrotsþjófum

Þegar íbúi einbýlishúss í austurborginni kom heim til sín í gærkvöldi voru þar tveir þjófar að tína þýfi í töskur, sem þeir höfðu meðferðis.

Þegar hann ætlaði að stöðva leikinn, hrintu þeir honum úr vegi og tóku til fótanna, en skildu þýfið eftir. Lögregla hóf þegar leit í grenndinni, sem ekki hefur borið árangur, en hún hefur tiltekna menn sterklega grunaða og verður þeirra leitað áfram í dag. Húsráðanda sakaði ekki í átökum við þjófana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×