Lögfræðingur Hauks segir tveggja ára dóm koma verulega á óvart 30. júní 2011 18:45
Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi starfsmaður Landsbankans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögfræðingur hans segir niðurstöðuna koma sér á óvart. Haukur Þór Haraldsson starfaði sem framkvæmdastjóri Landsbankans. Hann var sakfelldur fyrir að hafa millifært 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings inn á eigin reikning þann 8. október 2008. Aðeins tveimur dögum eftir að ljóst var að íslenska bankakerfið var hrunið. Félagið NBI Holdings, sem var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og laut stjórn Hauks hafði verið notað af bankanum til að halda utan um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum. Með millifærslunni sagðist Haukur hafa ætlað að bjarga fénu frá því að verða að hverri annarri kröfu í þrotabú bankans síðar meir. Þetta er í annað sinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í þessu sama máli en Haukur var áður sýknaður í Héraðsdómif. Hæstaréttur ómerkti hins vegar dóminn og vísaði málinu aftur til héraðs. Gestur Jónsson, verjandi Hauks, sagði niðurstöðuna koma honum og umbjóðanda hans verulega á óvart. Sérstaklega þar sem annar dómari við sama dómstól hefði talið Hauk saklausan. Hann sagði ljóst að málinu yrði áfrýjað en Hauk 2 ára fangelsisdóms þarf Haukur að greiða Gesti um fjórar milljónir í málsvarnarlaun.
Tengdar fréttir Haukur Þór í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt Haukur Þór Haraldsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Haukur Þór starfaði hjá Landsbankanum fyrir hrun og var sakfelldur fyrir að hafa eftir bankahrunið millifært 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings Ltd. 8. október 2008 inn á eigin reikning. Þetta er í annað sinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í þessu sama máli. Við fyrri meðferð málsins var hann sýknaður í héraði en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísaði honum aftur til efnislegrar meðferðar. Félagið NBI Holdings, sem var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og laut stjórn Hauks, hafði legið í dvala í hálfan áratug, en var áður notað af bankanum til að halda utan um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum sem hefðu komið til frádráttar eigin fjár bankans ef þeir hefðu verið í efnahagsreikningi hans. Haukur segist hafa ætlað að bjarga fénu frá því að verða að hverri annarri kröfu í þrotabú bankans síðar meir. Auk tveggja ára fangelsis þarf Haukur að greiða verjanda sínum ríflega fjórar milljónir króna 30. júní 2011 14:08 Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Innlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Fleiri fréttir Hvalfjarðargöngunum lokað vegna áreksturs Strandaveg í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Sjá meira
Haukur Þór í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt Haukur Þór Haraldsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Haukur Þór starfaði hjá Landsbankanum fyrir hrun og var sakfelldur fyrir að hafa eftir bankahrunið millifært 118 milljónir króna af reikningi félagsins NBI Holdings Ltd. 8. október 2008 inn á eigin reikning. Þetta er í annað sinn sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í þessu sama máli. Við fyrri meðferð málsins var hann sýknaður í héraði en Hæstiréttur ómerkti þann dóm og vísaði honum aftur til efnislegrar meðferðar. Félagið NBI Holdings, sem var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og laut stjórn Hauks, hafði legið í dvala í hálfan áratug, en var áður notað af bankanum til að halda utan um eignarhluti í fjármálafyrirtækjum sem hefðu komið til frádráttar eigin fjár bankans ef þeir hefðu verið í efnahagsreikningi hans. Haukur segist hafa ætlað að bjarga fénu frá því að verða að hverri annarri kröfu í þrotabú bankans síðar meir. Auk tveggja ára fangelsis þarf Haukur að greiða verjanda sínum ríflega fjórar milljónir króna 30. júní 2011 14:08