Innlent

Hefur áhyggjur af úrsögnum úr Þjóðkirkjunni

Jón Hákon Halldórssno skrifar
Karl Sigurbjörnsson segir að allsstaðar á Norðurlöndum hafi fækkað hlutfallslega í Þjóðkirkjunni. Mynd/ GVA.
Karl Sigurbjörnsson segir að allsstaðar á Norðurlöndum hafi fækkað hlutfallslega í Þjóðkirkjunni. Mynd/ GVA.
Það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af úrsögnum og fækkun í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Það er samt ekki séríslenskt fyrirbæri, segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. Hann segir að lls staðar á Norðurlöndunum megi sjá hliðstæða þróun, þar séu þjóðkirkjurnar líka að hopa og það af ýmsum ástæðum, lýðfræðilegum og menningarlegum. Karl segir í pistli á vefnum tru.is að eins og hér á landi megi einnig sjá í þeim úrsögnum viðbrögð við deilum og hneykslismálum innan kirknanna.

Tölur sem Þjóðskrá birti í gær sýna að um 6500 manns sögðu sig úr þjóðkirkjunni frá 1. desember árið 2009 til síðustu mánaðarmóta. Tölurnar benda til þess að óánægja með Þjóðkirkjuna vegna viðbragða hennar við kynferðisbrotum Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups hafi orðið til þess að fjölga úrsögnum.

Karl Sigurbjörnsson biskup segir áhugavert að bera hlutfall þjóðkirkjufólks á Norðurlöndunum saman. Alls staðar hafi það lækkað. „Þjóðfélag og menning, siður og trú er í mikilli deiglu allt í kringum okkur. Og það er áskorun á okkur sem störfum í kirkjunni," segir Karl. Karl segir að það sé afar sorglegt að svo margir segi sig úr þjóðkirkjunni og sömuleiðis mjög miður að fólk beri minna traust til kirkjunnar og biskups hennar. „Ég tek það afar alvarlega, þau öll sem starfa innan kirkjunnar og þau sem líta til hennar um leiðsögn og þjónustu taka það afar alvarlega.

Karl segir að um land allt sé kirkjan að vinna mikilvægt mannræktarstarf og mæta fólki í erfiðum aðstæðum með orð og athöfn sem veki von og lífsþrótt. „Mesta áhyggjuefni mitt er að úrsagnir bitni á því starfi. Ég tel að við verðum að hlusta eftir því sem fólk er ósátt við og bæta úr þar sem þarf að bæta. Það er áskorunin. Tökum saman höndum að því verkefni," segir Karl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×