Erlent

Murdoch feðgar og Brooks fyrir þingnefnd í dag

Þeir Rupert og James Murdoch eigendur News Corporation og Rebakah Brooks fyrrum ritstjóri News of the World munu koma fyrir þingnefnd á breska þinginu í dag til að svara spurningum þingmanna um hlerunarhneykslið hjá blaðinu New of the World.

Bein sjónvarpsútsending verður frá þessum nefndarfundi og búist er við að milljónir manna muni fylgjast með henni.

Fjöldi manns hefur verið handtekinn vegna málsins og það hefur þegar kostað tvo háttsetta lögregluforingja starf sitt.

Þeir Rupert og James höfðu áður hafnað því að ræða við þingnefndina en skiptu um skoðun eftir að nefndin ákvað að stefna þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×