Erlent

Tugir hlaupast úr Sýrlandsher

Stuðningsmenn Assad Sýrlandsforseta í höfuðborginni  Damaskus fyrr í mánuðinum.
Stuðningsmenn Assad Sýrlandsforseta í höfuðborginni Damaskus fyrr í mánuðinum. Mynd/AP
Fjöldi sýrlenskra hermanna var sendur með þyrlum í gær til bæjarins al-Boukamal þar sem tugir hermanna höfðu gerst liðhlaupar og gengið til liðs við mótmælendur.

Mótmælendum gegn Bashar Assad Sýrlandsforseta fjölgar stöðugt þrátt fyrir æ harkalegri aðgerðir hers og lögreglu gegn mótmælendunum.

Hundruð þúsunda héldu út á götur landsins á föstudag til að krefjast lýðræðisumbóta og afsagnar forsetans.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×