Viðskipti erlent

Rothschild aðstoðar Walker við kaupin á Iceland

Malcolm Walker forstjóri og stofnandi Iceland Foods verslunarkeðjunnar hefur ráðið Rothschild bankann til að aðstoða sig við að kaupa keðjuna af skilanefnd Landsbankans.

Bloomberg fréttaveitan greinir frá þessu og vitnar í blaðið Sunday Times. Þar kemur fram að Walker hafi verið í sambandi við banka og fjárfestingarsjóði til að útvega sér allt að 1,2 milljarði punda eða tæplega 230 milljarða kr. svo hann geti keypt Iceland.

Eins og fram hefur komið er mikill áhugi fyrir kaupunum á Iceland en söluferli keðjunnar hefst í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×