Erlent

Hiltabeltisstormur skellur á Bahamaeyjar

Íbúar á Bahamaeyjum eru nú að undirbúa sig undir komu hitabeltisstormsins Bret en talið er að hann muni skella á eyjarnar í dag.

Samkvæmt frétt á CNN er Bret annar hitabeltisstormurinn sem myndast á þessu fellibyljatímabili í Karabíska hafinu.

Bret sækir í sig veðrið þessa stundina og er vindhraðinn í honum kominn upp í 65 kílómetra á klukkustund. Samkvæmt upplýsingum frá bandarísku veðurstofunni er búist við að krafturinn í storminum muni aukast á næstu 48 klukkutímunum. Búið er að gefa út viðvaranir á Bahamaeyjum vegna stormsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×