Erlent

Harðir bardagar í olíuborginni Brega

Uppreisnarmenn í Líbýu segja að þeir hafi átti í hörðum bardögum við hersveitir Muammar Gaddafi í úthverfum olíuborgarinnar Brega um helgina.

Uppreisnarmenn hafa verið í sókn í átt að borginni undanfarna daga þrátt fyrir þunga stórskotahríð hersveita Gaddafi gegn þeim. Samkvæmt frétt á BBC hefur ekki verið hægt að staðfesta þessar fréttir. Fari hinsvegar svo að Brega falli í hendur uppreisnarmanna yrði slíkt alvarlegt áfall fyrir Gaddafi.

Brega liggur í um 750 km fjarlægð austur af Trípólí og hefur uppreisnarmönnum nokkrum sinnum áður tekist að komast inn í borgina frá því að átökin í Lýbíu hófust í febrúar síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×