Viðskipti erlent

Vilja byggja háhraðalest milli Osló og Kaupmannahafnar

Kínverskir sérfræðingar eru nú staddir í Noregi og Svíþjóð en þeir vilja byggja háhraðalestaspor milli Osló og Kaupmannahafnar með viðkomu í Gautaborg.

Fjallað er um málið í Berlingske Tidende. Þar segir að Kínverjar hafa á síðustu árum náð mestum árangri allra þjóða í að byggja og reka háhraðalestakerfi. Þessar lestir eru nú í notkun víða í Kína.

Ef af áformum Kínverjar verður er ljóst að ríkisstjórnir Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur verða að leggja töluvert af opinberu fé í lestina milli Osló og Kaupmannahafnar. Áður hefur verið reiknað út að bygging á slíku lestarkerfi milli Osló og Kaupmannahafnar muni kosta um 125 milljarða danskra kr. Kínverjarnir segja að þeir geti byggt slíkt kerfi fyrir 70 milljarða danskra kr. Það er þó með þeim fyrirvara að kínverskir verkamenn verði notaðir til verksins.

Kínverjar á vegum CMC fyrirtækisins eru nú staddir á Norðurlöndunum að kanna staðsetningu á háhraðajárnbrautinni. Zhao Jun forstjóri CMC segir í samtali við Dagens Næringsliv í Noregi að á síðasta áratug hafi Kínverjar byggt upp 10.000 km langt háhraðalestarkerfi í Kína. Þeir lendi ekki í því kostnaðaráætlanir þeirra standist ekki eins og algengt er í stærri byggingaframkvæmdum á Norðurlöndunum. Þvert á móti eru þeir yfirleitt undir kostnaðaráætlunum í sínum framkvæmdum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×