Erlent

Murdoch forstjóri hrökklast úr starfi

Óli Tynes skrifar
Rebekha Brooks.
Rebekha Brooks.
Rebekha Brooks forstjóri fjölmiðlaveldis Ruberts Murdoch í Bretlandi hefur sagt af sér. Hún er fyrrverandi ritstjóri News of The World, blaðsins sem fyrst varð uppvíst að því að hlera síma þúsunda þekktra Breta, þar á meðal konungsfjölskyldunnar.

 

Í yfirlýsingu frá henni segir að hún muni nú einbeita sér að því að rétta við heiður sinn sem blaðamanns. Tvö önnur að blöðum Murdochs hafa verið sökuð um símhleranir. Það eru The Sun og The Sunday Times, sem lengi var eitt af virtustu blöðum landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×