Erlent

Fótboltabullur slógust í miðborg Stokkhólms

Nokkrir eru sárir eftir að tveimur hópum fótboltabullna laust saman í miðborg Stokkhólms í gær. Um var að ræða þröngan hóp stuðningsmanna grannaliðina AIK og Hammarby sem eldað hafa grátt silfur saman um árabil og ítrekað komist í kast við lögin.

Í átökunum í gær tókust hátt í 60 bullur harkalega á og þurfti lögregla að skakka leikinn. Barefli og litlir hnífar fundust á nokkrum ofbeldismannanna en enginn særðist alvarlega í átökunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×