Erlent

Hundur beit Morrissey í puttann

Morrissey var staddur á Bretlandi þegar hann var bitinn af hundi.
Morrissey var staddur á Bretlandi þegar hann var bitinn af hundi. Mynd/Getty
Hundur réðst á breska söngvarann Morrissey nýverið og beit hann í puttann. Morrissey leitaði sér ekki aðstoðar strax en fór hins vegar á sjúkrahús í Malmö í Svíþjóð um helgina þar sem röntgenmynd leiddi í ljós að hann er nokkuð meiddur á vísifingri hægri handar. Ekki liggur fyrir hvort sýking hafi komið í sárið.

Söngvarinn er á tónleikaferðlagi um Evrópu og mun atvikið ekki hafa áhrif á túrinn. Morrissey kom fram í Laugardalshöll fyrir fimm árum en þekktastur er hann fyrir að hafa verið í hljómsveitinni The Smiths.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×