Erlent

Tveir fórust í sjóslysi

Fjórir voru um borð í þegar bátinn hvolfdi.
Fjórir voru um borð í þegar bátinn hvolfdi. Mynd úr safni
Tveir fórust og eins er saknað eftir að gúmmíbátur steytti á skeri úti fyrir Tjøme í suðurhluta Noregs í gær. Fjórir voru um borð í þegar bátinn hvolfdi og komst einn þeirra til lands og gat kallað eftir aðstoð, að því er fram kemur á vef Aftenposten.

Fjölmennt lið hóf þá björgunaraðgerðir og var mannanna leitað bæði af sjó og úr lofti. Kafarar frá slökkviliðinu í Drammen leita nú á svæðinu þar sem bátinn hvolfdi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×