Innlent

Hálfs árs gömul frétt um ferðir Herjólfs vinsæl á Facebook

Hér má sjá fréttina áður en henni var breytt, en tæp 1.200 manns hafa nú deilt fréttinni á samskiptavefnum Facebook.
Hér má sjá fréttina áður en henni var breytt, en tæp 1.200 manns hafa nú deilt fréttinni á samskiptavefnum Facebook.
„Herjólfur siglir ekki í dag“ er fyrirsögn fréttar Vísis sem Íslendingar deila nú í óðaönn með vinum sínum, við misgóðar undirtektir, en margir halda nú suður til Vestmannaeyja með ferjunni þar sem Þjóðhátíð er í þann mund að hefjast.

Yfir eitt þúsund manns hafa nú þegar deilt fréttinni á samskiptavefnum og flest þeirra í dag, þrátt fyrir að fréttin sjálf sé rúmlega sex mánaða gömul.

Starfsmaður Landeyjahafnar segir ótal símtöl hafa borist frá áhyggjufullum farþegum sem varð svo um þegar þeir sáu efni fréttarinnar að þeir komu ekki auga á dagsetningu hennar.

Dagsetningunni hefur nú verið bætt við fréttina að beiðni starfsmannsins, sem hafði í nógu öðru að snúast á svo miklum álagstímum en að svara spurningum um hálfs árs gamla frétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×