Innlent

Stuð í Herjólfi

Gleðin ein ríkti hjá ungmennum á leið á þjóðhátíð
Gleðin ein ríkti hjá ungmennum á leið á þjóðhátíð Simamynd
Gríðarlega stemning var í Herjólfi þegar hann yfirgaf Landeyjahöfn fyrir stundu. Á fjórða hundrað glaðbeittra ungmenna stigu um borð og ljóst að í þeirra huga var þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar hafin. Þau létu það ekki á sig fá þó veðrið væri ekki upp á sitt besta þennan daginn.

Mikil gæsla er við Landeyjahöfn og fíkniefnalögregla á staðnum. Allt hefur gengið eins og í sögu en ljóst er að mikil umferð verður um höfnina næstu daga enda uppselt í fjölda ferða Herjólfs til Vestmannaeyja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×