Innlent

Fólskuleg líkamsárás í Suðurhólum

Hópi barna varð varð illa brugðið við að verða vitni að fólskulegri líkamsárás og ránstilraun á gangstíg í Suðurhólum í Reykjavík, við leiksvæði Hólabrekkuskóla í gærkvöldi.

Árásarmaðurinn sló þolandann niður og barði hann ítrekað og sparkaði í hann, auk þess sem hann rótaði öllu upp úr vösum hans í leit að peningum, sem hann vissi að þolandinn hafði unnið í spilakassa á bar í grenndinni.

Þolandinn hafði hinsvegar beðið starfsfólkið að geyma vinninginn, sem var á annað hundrað þúsund krónur og var hann ekki með neina fjármuni á sér.

Foreldrar, sem voru á leiksvæðinu með börnunum, ætluðu að koma þolandanum til hjálpar þar sem hann lá blóðugur í jörðinni, en árásarmaðurinn hafði í alvarlegum hótunum við þá og forðaði sér áður en lögregla kom á vettvang.

Þolandinn var fluttur í sjúkrabíl á Slysadeild, en árásarmannsins er leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×