Yfirlýsing ungra jafnaðarmanna vegna atburðanna í Noregi 27. júlí 2011 21:00 Mynd/AFP
Ungir jafnaðarmenn á Íslandi gáfu í dag út yfirlýsingu vegna atburðanna í Noregi síðastliðinn föstudag. Í yfirlýsingunni segja þau árásirnar ekki aðeins vera árás á ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins eða stjórnvöld í Noregi, um sé að ræða árás á lýðræðið allt. Þá segja ungir jafnaðarmenn það vera nauðsynlegt að rödd unga fólksins heyrist nú hærra en áður. „Við verðum öll, óháð flokk eða hreyfingu, að taka höndum saman í baráttunni gegn hatri og mannvonsku. Svarið við árásum á lýðræðislegt samfélag er að efla umburðarlyndi, tjáningafrelsi og lýðræði.“Yfirlýsingin í heild sinni:Ungir jafnaðarmenn eru slegnir yfir atburðunum í Noregi síðastliðinn föstudag þegar ráðuneyti í Ósló voru sprengd upp og skoðanasystkini okkar voru myrt tugum saman í Útey. Hið norræna samfélag hefur orðið fyrir fólskulegri árás. Vegið er að norrænum gildum.Þessi árás var ekki einungis árás á ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins eða stjórnvöld í Noregi heldur lýðræðið allt. Ungt fólk skiptir miklu máli í lýðræðislegri þróun og skoðanir þess eru ekki minna virði en þeirra sem eldri eru. Þess vegna þykir okkur nauðsynlegt að rödd okkar heyrist nú hærra en áður. Við megum ekki láta þessar árásir stöðva okkur í að byggja upp réttlátt og lýðræðislegt samfélag umburðarlyndis og verðum að auka styrk okkar og samstöðu. Ógn við öryggi okkar má ekki verða til þess að við fórnum réttindum okkar.Við verðum öll, óháð flokk eða hreyfingu, að taka höndum saman í baráttunni gegn hatri og mannvonsku.Svarið við árásum á lýðræðislegt samfélag er að efla umburðarlyndi, tjáningafrelsi og lýðræði.
Mest lesið Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Erlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Rúður brotnar í Rimaskóla Innlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Fleiri fréttir Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Sjá meira