Innlent

Herjólfur væntanlega á áætlun í dag

MYND/Arnþór
Kvöldferðir Herjólfs voru felldar niður í gærkvöldi vegna of mikillar ölduhæðar við Landeyjahöfn. Nú hefur veður lægt og verður væntanlega siglt eftir áætlun.

Nú er orðið uppselt í margar ferðir skipsins fyrir og eftir þjóðhátíðina um næstu helgi, en margar aukaferðir verða farnar. Undirbúningur að hátíðinni stendur sem hæst og síðdegis í dag verða hústjöldin, eða hvítu tjöldin svonefndu, reist í Herjóflsdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×