Innlent

Íkveikja á Patreksfirði - játningar liggja fyrir

Patreksfjörður.
Patreksfjörður. Mynd/Sigurður Bogi
Upptök elds, sem olli mjög miklum skemmdum á einbýlishúsi á Patreksfirði aðfararnótt mánudags síðastliðings, voru af mannavöldum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Fjórir aðilar hafa notið réttarstöðu sakbornings við rannsókn málsins og liggja nú játningar fyrir. Málið telst að fullu upplýst samkvæmt tilkynningu lögreglunnar.

Tilkynnt var um eld í húsinu klukkan 4:40 aðfaranótt mánudagsins 25. júlí. Miklar skemmdir urðu og má telja húsið ónýtt eftir brunann, en engan sakaði þar sem húsið var mannlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×