Innlent

Tvítugur piltur játaði kannabisræktun í Hafnarfirði

Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar, auk græðlinga. Piltur um tvítugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×