Innlent

Lögreglustöðin á Egilsstöðum full af ferðamönnum frá Ísrael

Lögreglustöðin Egilsstöðum
Lögreglustöðin Egilsstöðum Mynd/Pjetur
Bíll fór út af vegi nálægt Egilsstöðum fyrr í kvöld. Lögreglukona á staðnum segir atvikið ekki fréttnæmt að því undanskildu að lögreglustöðin sé nú uppfull af ferðamönnum frá Ísrael.

„Þetta eru tuttugu og sjö manns og þau tala bara hebresku!" sagði lögreglukonan hálfhlæjandi, en bíllinn sem fór út af veginum var hluti af sjö bíla ferðateymi. „Þau reyna stundum að segja eitthvað við okkur en rífast svo bara sín á milli."

Hún segir bílinn ekki hafa oltið þegar hann fór út af veginum. „Það er allt í lagi með bílinn, við erum bara að reyna að koma öllu þessu fólki út af lögreglustöðinni." segir hún og bætir við: „Við auglýsum eftir lögreglumanni sem talar hebresku!"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×