Innlent

Sautján teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og átta fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Höfðu þrír þeirra ölvuðu og fjórir þeirra sem óku undir áhrifum fíkniefna þegar verið sviptir ökuleyfi.

Af þeim sautján ökumönnum sem stöðvaðir voru, voru ellefu teknir í Reykjavík, fimm í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. 

Þeir sem teknir voru fyrir ölvunarakstur voru fimm karlar á aldrinum 18-53 ára og fjórar konur, 22-59 ára. Fyrir fíkniefnaakstur tók lögreglan sex karla á aldrinum 18-30 ára og tvær konur um tvítugt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×