Innlent

Eldsupptök í Eden enn ókunn

Eden brann til kaldra kola
Eden brann til kaldra kola Mynd Ösp Vilberg


Eldsupptök í Eden í Hveragerði eru enn ókunn, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi.

Vinnu lögreglu á vettvangi lauk í dag en við tekur úrvinnsla á þeim gögnum og munum sem tekin voru á vettvangi.  Ljóst er að vinna þessi mun taka nokkurn tíma og niðurstöðu eða frekari upplýsinga ekki að vænta á næstunni um málið.  Mikil mildi er að ekki urðu slys á fólki eða enn umfangsmeira tjón en raun varð á enda nánast logn þegar eldurinn kom upp og bárust hiti, reykur og eiturgufur því beint upp af eldstaðnum í stað þess að leggjast yfir nærliggjandi íbúðabyggð.  

Rannsóknin er í höndun lögreglunnar á Selfossi og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, auk annarra sérfræðinga, til að mynda í rafmagnsbrunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×