Innlent

Maður á sexugsaldri ók Hellisheiðina á 139 kílómetra hraða

Þrettán ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku, í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Hraðast ók maður á sextugsaldri á Hellisheiði 139 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst og verður hann vart talinn til góðrar fyrirmyndar sér yngri ökumönnum í umferðinni. 

Sjö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu öll án teljandi slysa.   Einn ökumanna úr þessum óhöppum svaf úr sér áfengisvímu í klefa lögreglu í nótt en bifreið hans lenti út af Þingvallavegi við Kjósaskarð.  Hann var látinn laus undir hádegi í dag eftir yfirheyrslu.

Einn ökumaður var kærður fyrir að aka undir áhrifum ávana og fíkniefna en í þvagi hans greindist THC, sem er virka efnið í kannabis. Blóðsýni hefur verið sent rannsóknarstofu Háskólans til greiningar og hlýtur málið framgang eftir þeim niðurstöðum sem þaðan fást.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×