Innlent

Seinni umræða um drög að stjórnarskrá hefst í fyrramálið

Starf stjórnlagaráðs er langt komið
Starf stjórnlagaráðs er langt komið Mynd Brink
Síðari umræða Stjórnlagaráðs um drög að nýrri stjórnarskrá hefst í fyrramálið klukkan níu.

Drögin telja alls níu kafla sem innihalda 113 stjórnarskrárákvæði.

Á fundinum, sem er 18. fundur ráðsins, fara fram umræður um drögin og breytingartillögur. Gert er ráð fyrir að síðari umræða um drögin fari fram í ráðinu á morgun og miðvikudag. Loks fer fram atkvæðagreiðsla um frumvarpið í heild.

Stjórnlagaráð afhendir forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, frumvarpið, föstudaginn 29. júlí, klukkan 10.30 í Iðnó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×