Innlent

Konurnar sjö leita til fagráðs um kynferðisafbrot

Konurnar sjö, sem sökuðu Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumann krossins um kynferðisbrot, ætla að leita til nýstofnaðs fagráðs um kynferðisbrot, þar sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu  hefur vísað málunum frá.

Það gerði hann á grundvelli þess að málin væru fyrnd, samkvæmt lagaramma kynferðisbrota.

Í tilkynningu frá konunum segir að fyrning sanni ekki sakleysi þess, sem í hlut á. Í bréfum, sem lögreglustjóraembættið sendi konunum kemur þessi ástæða fyrir frávísun skýrt fram og er þeim jafnframt bent á fagráð um kynferðisbrot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×