Innlent

Herjólfur siglir ekki - næst athugað klukkan fimm

Enn ríkir óvissa um hvenær hægt verður að sigla í Landeyjahöfn í dag vegna veðurs og ölduhæðar. Ferðir Herjólfs frá Vestmannaeyjum klukkan hálfníu í morgun var felld niður sem og ferð frá Landeyjahöfn klukkan tíu.

Útlit með næstu ferðir er ekki gott segir í tilkynningu frá Herjólfi og verður ákvörðun um framhaldið tekin klukkan fimm í dag.

Farþegar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum eða hafa samband við afgreiðslu Herjólfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×