Erlent

Skildu eftir sig sprengjugildrur

Uppreisnarmenn í Líbíu.
Uppreisnarmenn í Líbíu. Mynd/AP
Uppreisnarherinn í Líbíu segir að liðsmenn Múammars Gaddafís hafi skilið eftir sig fullt af sprengjugildrum í olíuvinnslumannvirkjum hafnarborgarinnar Brega.

„Því miður þá er Brega eitt allsherjar sprengjusvæði núna,“ sagði Mahmoud Jibril, forsvarsmaður uppreisnarmanna. Þá hafi liðsmenn Gaddafís einnig komið fyrir sprengjugildrum á sumum olíunámusvæðum landsins.

Uppreisnarmennirnir hafa sem fyrr austanvert landið að mestu á sínu valdi og hafa sótt fram í hafnarborginni Brega undanfarna daga. Sú sókn hefur hins vegar gengið hægar en ella vegna sprengjugildranna sem þeir rekast á þar.

- gb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×