Innlent

Atvinnuleysistölur koma ráðherra ekki á óvart

Mynd/Anton Brink
Efnahags og viðskiptaráðherra segir atvinnuleysi nú ekki verra en búist var við miðað við hagsveifluna. Það sé undir okkur sjálfum komið hversu hratt okkur tekst að vinna á langtíma atvinnuleysi.

Hagstofan kynnti í gær tölur um atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi og sýna þær meðal annars að atvinnuleysi sé nú 8,5 prósent og að störfum hafi fjölgað lítillega milli ára. Þá hafa tæplega fjögurþúsund manns verið án vinnu í ár eða lengur og fimmti hver atvinnulaus er á aldrinum 16-24 ára.

Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, segir tölurnar ekki koma sér á óvart. „Þetta eru tölur sem að eru alveg í samræmi við það sem búist var við á þessum stað í hagssveiflunni."

Mikill slaki hafi verið í hagkerfinu í talsverðan tíma og fyrirtæki verið hvött til þess að segja ekki upp fólki til dæmis með rausnarlegu hlutabótakerfi. „Þess vegna er mikil framleiðslugeta í fyrirtækjunum ónýtt og þau hafa því mikið svigrúm til að auka við sig umsvif án þess að ráða nýtt fólk."

Hann segir atvinnuleysi meðal ungs fólks vera áhyggjuefni og því hafi mikið fé verið lagt í að tryggja atvinnutækifæri fyrir ungt fólk. „Vandi þeirra er fyrst og fremst skortur á skólagöngu og það er mjög mikilvægt að auka á hæfni þeirra núna þannig að þau verði betur í stakk búin til að taka ný störf, betur launuð og krefjast meiri þekkingar og menntunar á síðari stigum."

Þá segir Árni Páll það undir okkur sjálfum komið hversu lengi við þurfum að glíma við langtímatvinnuleysi. „Getum við komið kröftugum sjálfbærum hagvexti af stað fljótt og þar með stytt tímann sem við þurfum að glíma við mikið atvinnuleysi, það er stóra spurningin," segir Árni Páll.


Tengdar fréttir

Atvinnuleysið 8,5% á öðrum ársfjórðungi

Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 15.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,5% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 400 manns.

Atvinnuleysi meira en í tölum Vinnumálastofnunar

Langtímaatvinnuleysi hefur tekið stökk á milli ára, þrátt fyrir fullyrðingar um að efnahagsbatinn sé hafinn í landinu. 15.800 manns voru atvinnulausir á öðrum fjórðungi ársins.

Störfum fjölgar ekki, atvinnuleysi enn mikið

Störfum hefur ekki fjölgað í hagkerfinu, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að efnahagsbatinn sé hafinn. Óvíst er hvort fyrirtæki ráði fleiri starfsmenn á næstu misserum, jafnvel þó hagvöxtur taki kipp.

Nær 4.000 án vinnu í ár eða lengur

Fólki sem verið hefur án atvinnu í eitt ár eða lengur fjölgar verulega milli ára. Um 3.900 höfðu verið atvinnulausir svo lengi að meðaltali á öðrum ársfjórðungi 2011, en á síðasta ári voru 2.700 í þeirri stöðu, að því er fram kemur í samantekt Hagstofu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×