Brot Ólafs Skúlasonar gleymast ekki þrátt fyrir bætur 21. júlí 2011 09:07 „
Ég hef aldrei farið fram á einhverja peninga frá kirkjunni," segir Stefanía Þorgrímsdóttir, ein kvennanna sem sakað hafa Ólaf Skúlason fyrrum biskup um kynferðisbrot. „Það er alltaf afstætt hvað fólk telur sanngjarnt. Þessu máli lauk fyrir mér þegar rannsóknarnefndin skilaði skýrslunni. Þessar bætur eru alfarið boð kirkjunnar sem var ákveðið á aukakirkjuþingi í vor," segir Stefanía í Fréttablaðinu í dag. Fjórum konum sem sakað hafa Ólaf um kynferðisbrot hafa verið boðnar sanngirnisbætur. Nefnd sem skipuð var á aukakirkjuþingi í vor til fjalla um niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar hefur átt í viðræðum við konurnar á undanförnum vikum með það að markmiðið að ná fram sáttum í málinu. Magnús Kristjánsson, formaður nefndarinnar, sagði í samtali við Vísi í gær að vonast sé til þess að samningar þess efnis verði undirritaðir síðar í vikunni. Upphæðin tekur mið af þeim bótum sem greiddar voru þeim sem hlutu skaða á vistheimilum ríkisins. Þær bætur gátu numið allt að 6 milljónum króna. Stefanía vill ekki úttala sig um bæturnar. „En nú verður gerð sátt og þá erum við að tala um sátt í hinni fornu merkingu þessa orðs, þar sem aðilar sem hafa verið að deila, hafa með tilteknum gjörningi eða samkomulagi komist að því sem heitir á lögfræðimáli sátt. Við teljum að þessu máli sé lokið en það er ekki þar með sagt að það sé gleymt eða fyrirgefið,“ segir Stefanía í Fréttablaðinu í dag.
Tengdar fréttir Sér Ólaf í Karli Ólöf Pitt Jónsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, segist sjá Ólaf í Karli Sigurbjörnssyni. Hún segir Karl ekki tala af einlægni í biskupsmálinu svokallaða. Ólöf vill að Karl láti nú þegar af embætti biskups. 14. júní 2011 13:11 Örn Bárður vill biskup og forystu kirkjunnar frá Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju og stjórnlagaráðsfulltrúi, hvetur forystu kirkjunnar til að stíga til hliðar í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að viðbrögð yfirstjórnar kirkjunnar við skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar hafi valdið honum vonbrigðum. Hann gagnrýnir einnig kirkjuþing og spyr af hverju biskup hafi ekki vikið úr þingsal og leyft þinginu að ræða málið að honum fjarstöddum. Hann spyr einnig hvort enginn hafi orðað þann möguleika að biskup þyrfti hugsanlega að segja af sér. Hann segir að forysta kirkjunnar geti nú sýnt auðmýkt með djarfmannlegu verki; stigið til hliðar og viðurkennt að henni hafi mistekist í málinu. sáttargjörð verði ekki í reynd fyrr en hrein iðrun hafi átt sér stað, og þjóðin þoli illa hálfkák í alvarlegu máli sem þessu. 17. júní 2011 10:09 Karl hyggst stíga frá embætti innan tíðar Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í viðtali við Kastljós í kvöld að hann hyggðist stíga frá embætti innan tíðar. 16. júní 2011 20:24 Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar. 10. júní 2011 11:17 Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi "Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu,“ segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar. 13. júní 2011 11:07 Hefur áhyggjur af úrsögnum úr Þjóðkirkjunni Það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af úrsögnum og fækkun í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Það er samt ekki séríslenskt fyrirbæri, segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. Hann segir að lls staðar á Norðurlöndunum megi sjá hliðstæða þróun, þar séu þjóðkirkjurnar líka að hopa og það af ýmsum ástæðum, lýðfræðilegum og menningarlegum. Karl segir í pistli á vefnum tru.is að eins og hér á landi megi einnig sjá í þeim úrsögnum viðbrögð við deilum og hneykslismálum innan kirknanna. 6. júlí 2011 14:06 Biskup mættur á kirkjuþing Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, mun í fyrsta sinn ræða um rannsóknarskýrslu kirkjuþings á þinginu sem hefst nú klukkan níu. Fyrst á dagskránni er helgistund, síðan sér Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, um forlega setningu þingsins. Því næst flytur forsætisnefnd þingsins tillögu til þingsályktunar um niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar. Kirkjuþingið fer fram í Grensáskirkju og er eiginkona séra Karls meðal gesta. Eins og komið hefur fram hafa tveir fulltrúar sagt sig frá þingsetu, annars vegar séra Baldur Kristjánsson sem starfaði náið með séra Ólafi Skúlasyni í biskupstíð hans, og síðan sonur séra Ólafs, séra Skúli Sigurður Ólafsson, vegna fjölskyldutengsla. Nokkur óánægja hefur verið meðal presta um að séra Karl hafi ekki sagt sig frá þingsetu, en þar verður tekin ákvörðun um viðbrögð við skýrslunni. Þingið er öllum opið. 14. júní 2011 08:58 Vilja biskup burt af kirkjuþingi Óánægja er meðal presta vegna setu Karl Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, á Kirkjuþingi sem hefst á morgun. Tveir prestar hafa sagt sig frá þinginu vegna tengsla við mál Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Annar þeirra er sonur Ólafs. 13. júní 2011 18:47 Boltinn hjá biskupi Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli, segir skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings vandaða og því beri að fagna. Niðurstöðurnar séu skýrar og nú sé boltinn hjá séra Karli Sigurbjörnssyni, biskupi, og öðrum sem fjallað er um í skýrslunni. Af þeim sökum vill hún ekki segja til um hvort Karl eigi að víkja sem biskup líkt og Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, fórnarlamb séra Ólafs Skúlasonar, hefur kallað eftir. 10. júní 2011 21:49 Ræðu biskups beðið Mikil eftirvænting ríkir eftir ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, á kirkjuþingi á morgun þegar hann tjáir sig í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Viðmælendur fréttastofu úr hópi presta segja að búast megi við uppgjöri. 13. júní 2011 14:45 Fórnarlamb biskups: Ekki hrædd lengur Dagbjört Guðmundsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, var stödd á kirkjuþingi í gær. Hún er í alla staði ánægð með skýrsluna og telur hana afar vel unna. Dagbjört segir kirkjuna í heild hafa brugðist henni, Guðrúnu Ebbu og Sigrúnu Pálínu á sínum tíma, ekki einungis Karl Sigurbjörnsson biskup. Hún telur ekki nauðsynlegt að Karl víki úr embætti. Dagbjört krefur hins vegar kirkjuna sem heild um aðgerðir. 15. júní 2011 11:00 "Biskup Íslands þarf að segja af sér" af umhyggju fyrir kirkjunni "Biskup Íslands þarf að segja af sér og undirstrika þannig umhyggju fyrir kirkju þeirri sem hann hann þjónar, kirkju sem er biðjandi, boðandi og þjónandi." Þetta segir séra Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli. "Biskup Íslands þarf að kannast við það, að kirkjunni kemur betur að annar taki við lyklavaldi hans. Eftir því sem hann situr lengur í embætti verður skaði kirkjunnar meiri og sárari og tiltrú fólksins á kirkjunni dvínar," segir hún. Séra Sigríður hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna niðurstöðu rannsóknarnefndar kirkjuþings, en skýrsla nefndarinnar er til umræðu á kirkjuþingi sem hófst í morgun. Skýrslan fjallaði um viðbrögð kirkjunnar við ásökunum nokkurra kvenna sem sögðu séra Ólaf Skúlason, þáverandi biskup Íslands, hafa áreitt sig kynferðislega. Í yfirlýsingunni segir séra Sigríður að í þessu erfiða máli þar sem prestar, prófastar og biskup hafa gert sig sek um alvarleg mistök, þöggunartilburði og vanrækslu í starfi reyni á kirkjuaga. Biskup Íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar. "Biskup Íslands brást í biskupsmálinu og brot hans eru á sviði sálgæslu, þess sviðs sem myndar grunn vígðrar þjónustu og trúverðugleika þeirrar þjónustu. Hann er tilsjónarmaður prestanna, en getur á engan hátt talist heppilegur aðili til að aga þá aðila sem hafa gerst sekir um mistök, vanrækslu og þöggun. Eftir höfðinu dansa limirnir. Trú almennings á umhyggju og fagleg vinnubrögð hinnar vígðu þjónustu er komin undir því að siðbót sálgæslunnar nái til allra stiga og þátta kirkjuvaldsins,“ segir í yfirlýsingu Sigríðar. 14. júní 2011 12:11 Vonast til að samningar verði undirritaðir fyrir vikulok Drög eru tilbúin að samningum milli kirkju og þeirra fjögurra kvenna sem sakað hafa Ólaf Skúlason, fyrrum biskup Íslands, um kynferðisbrot. Samkvæmt Magnúsi Kristjánssyni, formanni nefndar sem stóð að samningagerðinni, er vonast til að þeir verði undirritaðir í vikunni. 20. júlí 2011 18:46 Biskup rýfur þögnina Karl Sigurbjörnsson, biskup, tjáir sig á eftir í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Karl mun ávarpa kirkjuþing en það verður sett klukkan níu í Grensáskirkju. 14. júní 2011 08:28 Séra Karl situr áfram - þykir leitt að hafa brugðist "væntingum" Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, ætlar ekki á kirkjuþingi að ræða um einstök mál sem rannsóknarnefnd kirkjuþings setur út á. Samkvæmt skýrslu nefndarinnar gerði séra Karl margs konar mistök þegar séra Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup, var sakaður um kynferðislega áreitni. Séra Karl endurtók fyrri afsökunarbeiðni til þeirra kvenna sem séra Ólafur áreitti, og sagði að sér þætti leitt að hann hefði "brugðist væntingum þeirra." Þetta kom fram í ræðu séra Karls á kirkjuþingi fyrir stundu. Í ræðunni sagði hann ekkert um að víkja af kirkjuþingi þar sem ákvörðun verður tekin um viðbrögð kirkjunnar við skýrslunni, og talaði hann heldur ekkert um að víkja sem biskup. Tveir prestar viku sæti af kirkjuþingi vegna tengsla við séra Ólaf, en séra Karl vann náið með honum þegar ásakanir komu upp. Nokkrir prestar hafa þegar stigið fram og sagt að þeim fyndist ekki annað hægt en að séra Karl víki af kirkjuþingi. Aðrir hafa viðrað þá skoðun að honum sé ekki lengur sætt sem biskup vegna þeirra mistaka sem hann gerði í máli Ólafs. Í ræðunni sagði séra Karl að kynferðisbrot yrðu ekki liðin innan kirkjunnar. "Við viljum læra af mistökum," sagði hann. Hann þakkaði fulltrúum í rannsóknarnefndinni fyrir skýrsluna og sagði hana gagnast kirkjunni vel í sjálfskoðun. Séra Karl sagðist aldrei hafa haft uppi ásetning um að þagga niður ásakanir á hendur séra Ólafi um kynferðislega áreitni. "Okkar besta er oft ekki nóg," sagði hann um viðbrögðin á sínum tíma. Þá sagði séra Karl að "mörg okkar" hefðu ekki verið undir það búin að "slíkir hlutir gætu gerst." Hann sagði að "við" hefðum reynt að gera rétt og vildi óska að "okkur" hefði tekist betur upp. Að sögn Karls var ekki auðvelt að sitja frammi fyrir rannsóknarnefndinni og ræða um liðna atburði. "Ég hef oft staðið frammi fyrir rannsóknarnefnd eigin samvisku," sagði hann og að vegna þess hafi hann átt andvökunætur. Þingsályktunartillaga kirkjuþings var lögð fram áður en séra Karl tók til máls, og þar var lagt til að konurnar sem séra Ólafur áreitti yrðu beðnar afsökunar. Tók séra Karl undir það. Þá sagði séra Karl að honum fyndist kirkjan almennt of svifasein í að takast á við atburði sem þessa, og að móta þurfi sterkari stefnu. Ekki er ljóst hvort séra Karl ræðir við fjölmiðlafólk á kirkjuþinginu eða eftir það. Á dagskrá þingsins er nú að vinna frekar með viðbrögð þess við skýrslunni. 14. júní 2011 10:15 Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga. Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot. Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum. Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana. 10. júní 2011 12:15 Vanræktu að skrá bréf um kynferðisbrot Bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um kynferðisbrot föður hennar var ekki skráð í skjalaskrá Biskupsstofu Íslands fyrir en einu og hálfu eftir að hún sendi bréfið. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði við rannsóknarnefnd Kirkjuþings að í bréfinu væru alvarlegar ásakanir gagnvart látnum manni. 11. júní 2011 19:23 Mest lesið Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Innlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Innlent Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Innlent Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Erlent Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Erlent Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Sjá meira
Sér Ólaf í Karli Ólöf Pitt Jónsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, segist sjá Ólaf í Karli Sigurbjörnssyni. Hún segir Karl ekki tala af einlægni í biskupsmálinu svokallaða. Ólöf vill að Karl láti nú þegar af embætti biskups. 14. júní 2011 13:11
Örn Bárður vill biskup og forystu kirkjunnar frá Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju og stjórnlagaráðsfulltrúi, hvetur forystu kirkjunnar til að stíga til hliðar í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að viðbrögð yfirstjórnar kirkjunnar við skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar hafi valdið honum vonbrigðum. Hann gagnrýnir einnig kirkjuþing og spyr af hverju biskup hafi ekki vikið úr þingsal og leyft þinginu að ræða málið að honum fjarstöddum. Hann spyr einnig hvort enginn hafi orðað þann möguleika að biskup þyrfti hugsanlega að segja af sér. Hann segir að forysta kirkjunnar geti nú sýnt auðmýkt með djarfmannlegu verki; stigið til hliðar og viðurkennt að henni hafi mistekist í málinu. sáttargjörð verði ekki í reynd fyrr en hrein iðrun hafi átt sér stað, og þjóðin þoli illa hálfkák í alvarlegu máli sem þessu. 17. júní 2011 10:09
Karl hyggst stíga frá embætti innan tíðar Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í viðtali við Kastljós í kvöld að hann hyggðist stíga frá embætti innan tíðar. 16. júní 2011 20:24
Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar. 10. júní 2011 11:17
Biskupsritari Ólafs Skúlasonar segir sig frá kirkjuþingi "Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu,“ segir Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi og fyrrum biskupsritari Ólafs Skúlasonar. Hann biður Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur, Dagbjörtu Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur fyrirgefningar. 13. júní 2011 11:07
Hefur áhyggjur af úrsögnum úr Þjóðkirkjunni Það er vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af úrsögnum og fækkun í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Það er samt ekki séríslenskt fyrirbæri, segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. Hann segir að lls staðar á Norðurlöndunum megi sjá hliðstæða þróun, þar séu þjóðkirkjurnar líka að hopa og það af ýmsum ástæðum, lýðfræðilegum og menningarlegum. Karl segir í pistli á vefnum tru.is að eins og hér á landi megi einnig sjá í þeim úrsögnum viðbrögð við deilum og hneykslismálum innan kirknanna. 6. júlí 2011 14:06
Biskup mættur á kirkjuþing Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, mun í fyrsta sinn ræða um rannsóknarskýrslu kirkjuþings á þinginu sem hefst nú klukkan níu. Fyrst á dagskránni er helgistund, síðan sér Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, um forlega setningu þingsins. Því næst flytur forsætisnefnd þingsins tillögu til þingsályktunar um niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar. Kirkjuþingið fer fram í Grensáskirkju og er eiginkona séra Karls meðal gesta. Eins og komið hefur fram hafa tveir fulltrúar sagt sig frá þingsetu, annars vegar séra Baldur Kristjánsson sem starfaði náið með séra Ólafi Skúlasyni í biskupstíð hans, og síðan sonur séra Ólafs, séra Skúli Sigurður Ólafsson, vegna fjölskyldutengsla. Nokkur óánægja hefur verið meðal presta um að séra Karl hafi ekki sagt sig frá þingsetu, en þar verður tekin ákvörðun um viðbrögð við skýrslunni. Þingið er öllum opið. 14. júní 2011 08:58
Vilja biskup burt af kirkjuþingi Óánægja er meðal presta vegna setu Karl Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, á Kirkjuþingi sem hefst á morgun. Tveir prestar hafa sagt sig frá þinginu vegna tengsla við mál Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Annar þeirra er sonur Ólafs. 13. júní 2011 18:47
Boltinn hjá biskupi Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli, segir skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings vandaða og því beri að fagna. Niðurstöðurnar séu skýrar og nú sé boltinn hjá séra Karli Sigurbjörnssyni, biskupi, og öðrum sem fjallað er um í skýrslunni. Af þeim sökum vill hún ekki segja til um hvort Karl eigi að víkja sem biskup líkt og Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, fórnarlamb séra Ólafs Skúlasonar, hefur kallað eftir. 10. júní 2011 21:49
Ræðu biskups beðið Mikil eftirvænting ríkir eftir ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups, á kirkjuþingi á morgun þegar hann tjáir sig í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Viðmælendur fréttastofu úr hópi presta segja að búast megi við uppgjöri. 13. júní 2011 14:45
Fórnarlamb biskups: Ekki hrædd lengur Dagbjört Guðmundsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, var stödd á kirkjuþingi í gær. Hún er í alla staði ánægð með skýrsluna og telur hana afar vel unna. Dagbjört segir kirkjuna í heild hafa brugðist henni, Guðrúnu Ebbu og Sigrúnu Pálínu á sínum tíma, ekki einungis Karl Sigurbjörnsson biskup. Hún telur ekki nauðsynlegt að Karl víki úr embætti. Dagbjört krefur hins vegar kirkjuna sem heild um aðgerðir. 15. júní 2011 11:00
"Biskup Íslands þarf að segja af sér" af umhyggju fyrir kirkjunni "Biskup Íslands þarf að segja af sér og undirstrika þannig umhyggju fyrir kirkju þeirri sem hann hann þjónar, kirkju sem er biðjandi, boðandi og þjónandi." Þetta segir séra Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli. "Biskup Íslands þarf að kannast við það, að kirkjunni kemur betur að annar taki við lyklavaldi hans. Eftir því sem hann situr lengur í embætti verður skaði kirkjunnar meiri og sárari og tiltrú fólksins á kirkjunni dvínar," segir hún. Séra Sigríður hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna niðurstöðu rannsóknarnefndar kirkjuþings, en skýrsla nefndarinnar er til umræðu á kirkjuþingi sem hófst í morgun. Skýrslan fjallaði um viðbrögð kirkjunnar við ásökunum nokkurra kvenna sem sögðu séra Ólaf Skúlason, þáverandi biskup Íslands, hafa áreitt sig kynferðislega. Í yfirlýsingunni segir séra Sigríður að í þessu erfiða máli þar sem prestar, prófastar og biskup hafa gert sig sek um alvarleg mistök, þöggunartilburði og vanrækslu í starfi reyni á kirkjuaga. Biskup Íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar. "Biskup Íslands brást í biskupsmálinu og brot hans eru á sviði sálgæslu, þess sviðs sem myndar grunn vígðrar þjónustu og trúverðugleika þeirrar þjónustu. Hann er tilsjónarmaður prestanna, en getur á engan hátt talist heppilegur aðili til að aga þá aðila sem hafa gerst sekir um mistök, vanrækslu og þöggun. Eftir höfðinu dansa limirnir. Trú almennings á umhyggju og fagleg vinnubrögð hinnar vígðu þjónustu er komin undir því að siðbót sálgæslunnar nái til allra stiga og þátta kirkjuvaldsins,“ segir í yfirlýsingu Sigríðar. 14. júní 2011 12:11
Vonast til að samningar verði undirritaðir fyrir vikulok Drög eru tilbúin að samningum milli kirkju og þeirra fjögurra kvenna sem sakað hafa Ólaf Skúlason, fyrrum biskup Íslands, um kynferðisbrot. Samkvæmt Magnúsi Kristjánssyni, formanni nefndar sem stóð að samningagerðinni, er vonast til að þeir verði undirritaðir í vikunni. 20. júlí 2011 18:46
Biskup rýfur þögnina Karl Sigurbjörnsson, biskup, tjáir sig á eftir í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Karl mun ávarpa kirkjuþing en það verður sett klukkan níu í Grensáskirkju. 14. júní 2011 08:28
Séra Karl situr áfram - þykir leitt að hafa brugðist "væntingum" Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, ætlar ekki á kirkjuþingi að ræða um einstök mál sem rannsóknarnefnd kirkjuþings setur út á. Samkvæmt skýrslu nefndarinnar gerði séra Karl margs konar mistök þegar séra Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup, var sakaður um kynferðislega áreitni. Séra Karl endurtók fyrri afsökunarbeiðni til þeirra kvenna sem séra Ólafur áreitti, og sagði að sér þætti leitt að hann hefði "brugðist væntingum þeirra." Þetta kom fram í ræðu séra Karls á kirkjuþingi fyrir stundu. Í ræðunni sagði hann ekkert um að víkja af kirkjuþingi þar sem ákvörðun verður tekin um viðbrögð kirkjunnar við skýrslunni, og talaði hann heldur ekkert um að víkja sem biskup. Tveir prestar viku sæti af kirkjuþingi vegna tengsla við séra Ólaf, en séra Karl vann náið með honum þegar ásakanir komu upp. Nokkrir prestar hafa þegar stigið fram og sagt að þeim fyndist ekki annað hægt en að séra Karl víki af kirkjuþingi. Aðrir hafa viðrað þá skoðun að honum sé ekki lengur sætt sem biskup vegna þeirra mistaka sem hann gerði í máli Ólafs. Í ræðunni sagði séra Karl að kynferðisbrot yrðu ekki liðin innan kirkjunnar. "Við viljum læra af mistökum," sagði hann. Hann þakkaði fulltrúum í rannsóknarnefndinni fyrir skýrsluna og sagði hana gagnast kirkjunni vel í sjálfskoðun. Séra Karl sagðist aldrei hafa haft uppi ásetning um að þagga niður ásakanir á hendur séra Ólafi um kynferðislega áreitni. "Okkar besta er oft ekki nóg," sagði hann um viðbrögðin á sínum tíma. Þá sagði séra Karl að "mörg okkar" hefðu ekki verið undir það búin að "slíkir hlutir gætu gerst." Hann sagði að "við" hefðum reynt að gera rétt og vildi óska að "okkur" hefði tekist betur upp. Að sögn Karls var ekki auðvelt að sitja frammi fyrir rannsóknarnefndinni og ræða um liðna atburði. "Ég hef oft staðið frammi fyrir rannsóknarnefnd eigin samvisku," sagði hann og að vegna þess hafi hann átt andvökunætur. Þingsályktunartillaga kirkjuþings var lögð fram áður en séra Karl tók til máls, og þar var lagt til að konurnar sem séra Ólafur áreitti yrðu beðnar afsökunar. Tók séra Karl undir það. Þá sagði séra Karl að honum fyndist kirkjan almennt of svifasein í að takast á við atburði sem þessa, og að móta þurfi sterkari stefnu. Ekki er ljóst hvort séra Karl ræðir við fjölmiðlafólk á kirkjuþinginu eða eftir það. Á dagskrá þingsins er nú að vinna frekar með viðbrögð þess við skýrslunni. 14. júní 2011 10:15
Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga. Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot. Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum. Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana. 10. júní 2011 12:15
Vanræktu að skrá bréf um kynferðisbrot Bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um kynferðisbrot föður hennar var ekki skráð í skjalaskrá Biskupsstofu Íslands fyrir en einu og hálfu eftir að hún sendi bréfið. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði við rannsóknarnefnd Kirkjuþings að í bréfinu væru alvarlegar ásakanir gagnvart látnum manni. 11. júní 2011 19:23