Erlent

13 ára drengur stunginn til bana af jafnaldra sínum

Afbrýðissemi olli því að 13 ára drengur í Sönderborg í Danmörku stakk jafnaldra sinn til bana með hníf í gærkvöldi.

Drengirnir munu hafa deilt um ástir stúlku á svipuðu reki og enduðu þær deilur með hnífstungunni. Samkvæmt frásögn lögreglu kölluðu vitni að atburðinum strax á sjúkrabíl en ekki tókst að bjarga lífi drengsins sem lést á gjörgæsludeild um klukkutíma eftir hnífstunguna.

Sá sem stakk drenginn hljóp heim til sín og sagði foreldrum sínum frá því sem gerst hafði. Lögreglan sótti hann skömmu síðar en vegna ungs aldurs hans var honum komið í hendur barnaverndaryfirvalda.

Mikil sorg ríkir í Sönderborg vegna þessa atburðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×