Innlent

Bensínverð nær nýjum hæðum

Bensínverð hefur náð nýjum hæðum eftir síðustu hækkanir. Fjölskyldufaðir á leið í ferðalag segir hærra eldsneytisverð gera það að verkum að hann stoppi lengur á hverjum stað og keyri ekki eins mikið.

Hermann Guðmundsson, forstjóri N-1, sagði í samtali við fréttastofu í dag að nýjustu hækkanir væru tilkomnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs.

Tölur Vegagerðarinnar sýna að umferð um hringveginn í grend við höfuðborgina er minni það sem af er sumri en síðasta sumar. Á bensínstöð N1 í dag mátti hinsvegar sjá marga sem voru að leggja upp í ferðalag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×