Innlent

Fundu fíkniefni og þýfi

Fíkniefni
Fíkniefni Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi níu húsleitir í Hafnarfirði fyrir helgina. Lagt var hald á talsvert af fíkniefnum, m.a. nokkra tugi kannabisplantna, tæplega 100 grömm af amfetamíni og rúmlega 200 grömm af hassi.

Lögreglan tók einnig í sína vörslu fjölmarga muni sem stolið var í innbrotum á höfuðborgarsvæðinu. Búið er að staðfesta að þýfið er úr a.m.k. níu innbrotum, bæði í heimahús og fyrirtæki. Unnið er að því að koma hinum stolnum munum aftur í réttar hendur.

Fimm voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á innbrotunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×