Innlent

Lést eftir bifhjólaslys á Skaga

Maðurinn sem lenti í bifhjólaslysi við bæinn Víkur á Skaga þann 12. júlí lést á Landspítlanum í gær. Hann hét Árni S. Karlsson og var búsettur að Víkum ásamt systkinum sínum. Árni var fæddur 24. september 1950 og var ókvæntur og barnlaus.

Engin vitni urðu að slysinu en eftir því sem næst verður komist var Árni á leið um hlaðið frá vélageymslunni heim að íbúðarhúsinu á lítilli vespu þegar eitthvað fór úrskeiðis og hann féll og hafnaði hálfur ofan í bæjarlæknum. Árni var meðvitundarlaus þegar að var komið og var þá þegar kallað eftir aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×