Innlent

Læstur inni í fimm klukkustundir

Starfsmaðurinn hefur nú kært árásina til lögreglunnar á Sauðárkróki sem fer með rannsókn málsins.
Starfsmaðurinn hefur nú kært árásina til lögreglunnar á Sauðárkróki sem fer með rannsókn málsins. Myndin er úr safni
Starfsmaður meðferðarheimilis í Skagafirði sem fjórir unglingsdrengir réðust á um helgina hefur lagt fram kæru. Eftir árásina læstu drengirnir starfsmanninn inni í allt að fimm klukkustundir, stálu peningum og struku á bíl í eigu meðferðarheimilisins.

Samkvæmt upplýsingum Vísis var starfsmaðurinn einn á vakt en árásin átti sér stað aðfaranótt mánudags. Meðferðar- og skólaheimilið Háholt er einkarekið á grundvelli þjónustusamnings við Barnaverndarstofu. Þar dvelja 15 til 18 ára unglingar sem eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða. Unglingarnir hafa ýmist leiðst út í fíkniefnaneyslu, komist í kast við lögin, eiga í vandræðum í skóla og/eða eiga í félagslegum vanda af ýmsu tagi.

Þurfti að leita aðhlynningar

Unglingsdrengirnir sem réðust á starfsmanninn í Háholti eru 16-18 ára. Þeir fundust á gistiheimili á Akureyri á mánudaginn. Farið var með tvo drengjanna aftur í Háholt en hina tvo á Stuðla í Reykjavík.

Starfsmaðurinn losnaði úr prísundinni þegar annar starfsmaður kom á vakt. Starfsmaðurinn sem ráðist var á reyndist ekki mikið slasaður en þurfti þó að leita aðhlynningar vegna áverka sem hann hlaut. Maðurinn hefur nú kært árásina til lögreglunnar á Sauðárkróki sem fer með rannsókn málsins.

Árásin litin alvarlegum augum

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, sagði í samtali við Vísi í gærkvöldi að farið verði yfir öryggismál í Háholti.

„Við lítum alltaf alvarlegum augum atvik af þessu tagi. Það er alveg ljóst að þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki um þegar ofan á þetta bætist að þeir komust yfir bifreið, sem er náttúrulega drápstæki í sjálfu sér í höndum unglinga, er það háalvarlegur hlutur."


Tengdar fréttir

Réðust á starfsmann meðferðarheimilis og struku

Fjórir unglingsdrengir réðust á starfsmann á meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði síðastliðinn sunnudag. Því næst læstu þeir starfsmanninn inni, stálu peningum og struku á stolnum bíl. Frá þessu er greint á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að meiðsl starfsmannsins hafi verið minniháttar.

Árás á starfsmann meðferðarheimilis litin alvarlegum augum

„Það er alveg ljóst þegar um er að ræða líkamsárás og ég tala nú ekki þegar ofan á þetta bætist að þeir komust yfir bifreið, sem er náttúrulega drápstæki í sjálfum sér í höndum unglinga, að það er háalvarlegur hlutur," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, um mál fjögurra unglingsdrengja sem réðust á starfsmann meðferðarheimilis í Skagafirði á sunnudaginn og struku þaðan á stolinni bifreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×