Erlent

Óheppilegir kviðmágar

Óli Tynes skrifar
Tiger og Elín í den tid
Tiger og Elín í den tid
Fyrrverandi eiginkona Tigers Wood er sögð í sárum eftir að í ljós kom að nýr kærasti hennar hefur einnig deilt sæng með einni af hjákonum Tigers. Á slúðurvefnum TMZ segir að Elin Nordgren sé öskureið út í Jamie Dingman fyrir að hafa ekki sagt henni að hann hefði einnig legið Rachel Ucitel.

 

Það var að vísu löngu áður en þau kynntust en Elín er reið yfir að frétta þetta utanfrá. Hún hefur lagt áherslu á að halda sig utanvið sviðsljósið síðan þau Tiger skildu.

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×