Innlent

Á batavegi eftir bifhjólaslys

Mynd/GVA
Karlmaður sem lenti í bifhjólaslysi í Kópvogi aðfaranótt föstudags er á batavegi, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. Eftir slysið var manninum haldið sofandi i öndunarvél. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær maðurinn verður útskrifaður af gjörgæsludeild.

Maðurinn var á ferð um Nýbýlaveg í Kópavogi en svo virðist sem hann hafi misst stjórn á hjólinu og kastast á vegrið. Hann var meðvitundarlaus þegar lögreglu- og sjúkraflutningamenn komu á vettvang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×