Innlent

Fleiri sem vilja ekki rekstur spilavíta hér á landi

30,7 prósent landsmanna eru frekar eða mjög fylgjandi rekstri spilavíta hér á landi.
30,7 prósent landsmanna eru frekar eða mjög fylgjandi rekstri spilavíta hér á landi. Mynd úr safni
Samkvæmt nýrri könnun MMR fjölgar í hópi þeirra sem segjast andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Yfir 70 prósent karla undir þrítugu eru fylgjandi rekstri spilavíta.

Kannað var hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að leyfa rekstur spilavíta á Íslandi. Af þeim sem tóku afstöðu voru 69,3 prósent sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 47,5 prósent sem sögðust mjög andvíg, 21,8 prósent sögðust frekar andvíg, 19,8 prósent sögðust frekar fylgjandi og 10,9 prósent sögðust mjög fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á Íslandi. Samkvæmt könnuninni fer því heldur fækkandi í hópi þeirra sem eru fylgjandi rekstri spilavíta á Íslandi en í könnun MMR frá í febrúar 2010 kom fram að 36,3 prósent sögðust frekar eða mjög fylgjandi rekstri þeirra samanborið við 30,7 prósent nú.

Sem fyrr reyndist töluverður munur á afstöðu svarenda eftir kyni og aldri. Þannig voru 44 prósent karla sem sögðust hlynntir því að rekstur spilavíta væri leyfður en eingöngu 16 prósent kvenna. Þá reyndust 51 prósent svarenda undir þrítugu fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á meðan þetta sama hlutfall var 30 prósent hjá aldurshópnum 30-49 ára og eingöngu 14 prósent meðal 50 ára og eldri. Sé fjöldi karla undir þrítugu skoðaður sérstaklega kemur í ljós að 70 prósent svarenda í þessu hópi sögðust fylgjandi því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi.

Könnunin var framkvæmd dagana 11. til 14. júlí síðastliðinn og var úrtakið einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. 831 svöruðu spurningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×