Innlent

Umræða um drög að nýrri stjórnarskrá hefst í dag

Stjórnlagaráð að störfum. Ráðið afhendir frumvarp til nýrrar stjórnarskrár föstudaginn 29. júlí.
Stjórnlagaráð að störfum. Ráðið afhendir frumvarp til nýrrar stjórnarskrár föstudaginn 29. júlí. Mynd/GVA
Fyrsta umræða stjórnlagaráðs um drög að nýrri stjórnarskrá sem lögð voru fram fyrr í vikunni hefst í dag. Drögin telja alls 111 stjórnarskrárákvæði og eru í níu köflum. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár verður afhent í lok mánaðarins.

Frumvarpstillögurnar miða m.a. að því að bæta stjórnkerfi landsins, auka valddreifingu innan ríkisvaldsins og lýðræðislega þátttöku almennings. Einnig að efla upplýsingaskyldu opinberra aðila, tryggja eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum, jafna atkvæði allra landsmanna, tryggja frelsi fjölmiðla og efla hlutverk sveitarstjórna.

Fyrsta umræða um frumvarpsdrögin hefst klukkan 13 á opnum ráðsfundi sem sýndur er í beinni útsendingu á vef ráðsins. Á fundinum verða jafnframt lagðar fram breytingartillögur við frumvarpsdrögin.

Almenningur getur eftir sem áður gert athugasemdir við ákvæði í frumvarpsdrögunum. Margir hafa nýtt sér þennan möguleika síðustu mánuði og eru athugasemdir við svokallað áfangaskjal og frumvarpsdrögin nú orðnar tæplega 3.200.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×