Innlent

Styttist í druslugöngur

Drusluganga í Boston 7. maí sl. "Við viljum færa ábyrgð frá þolendum kynferðisafbrota yfir á gerendur.
Við viljum uppræta þá samfélagslegu fordóma sem endurspeglast í þeirri ofur-áherslu sem lögð er á klæðaburð, ástand og atferli þolenda í umræðunni um kynferðisofbeldi“ segir á heimasíðu göngunnar.
Drusluganga í Boston 7. maí sl. "Við viljum færa ábyrgð frá þolendum kynferðisafbrota yfir á gerendur. Við viljum uppræta þá samfélagslegu fordóma sem endurspeglast í þeirri ofur-áherslu sem lögð er á klæðaburð, ástand og atferli þolenda í umræðunni um kynferðisofbeldi“ segir á heimasíðu göngunnar. Mynd/AP
Druslugöngur verður farnar í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Ísafirði á laugardaginn. Markmiðið er uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi.

„Við búumst við ágætis fjölda og finnum að þetta var eitthvað sem þurfti. Gangan opnaði fyrir umræðuna í þjóðfélaginu sem er náttúrulega ótrúlega ánægjulegt," segir María Lilja Þrastardóttir, ein af skipuleggjendum göngunnar, í samtali við Vísi.

Fyrsta druslugangan, eða slut walk eins og fyrirbærið er kallað á ensku, var haldin í Toronto í apríl eftir að Michael Sanguinetti, lögreglustjóri borgarinnar, hafði sagt að konur þyrftu að passa sig á því að klæða sig ekki eins og druslur til að minnka líkur á því að þeim yrði nauðgað. Gangan vakti mikla athygli og fleiri druslugöngur voru haldnar

víða um heim og í byrjun sumars var á ákveðið að efna til slíkrar göngu á Íslandi. Fyrst var ákveðið að ganga í Reykjavík en skömmu síðar bættust einnig við druslugöngur í Reykjanesbæ og á Ísafirði.

„Við ætlum að þramma niður Skólavörðustíginn," segir María Lilja. Í Reykjavík verður gengið frá Skólavörðuholti niður að Ingólfstorgi þar sem fram fer skipulögð dagskrá. Gangan hefst klukkan 14.

Fín viðbrögð á Ísafirði

Á sama tíma hefst drusluganga í Reykjanesbæ. Þar er ætlunin að hittast hjá Nettó, ganga niður Hafnargötuna og enda í skrúðgarðinum.

Á Ísafirði ætla þátttakendur að ganga frá gamla sjúkrahúsinu að Silfurtorgi. Þá verður stoppað við kirkjuna, héraðsdóm, lögreglustöðina og sýslumannsembættið. Við lok göngunnar tekur við stutt athöfn á Silfurtorgi. Gangan á Ísafirði hefst einnig klukkan 14.

„Við höfum fengið mjög fín viðbrögð og til að mynda hafa yfir hundrað manns sagst ætla að mæta í gönguna á Facebooksíðu hennar," segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, ein af skipuleggjendum druslugöngunnar á Ísafirði, í samtali við BB.is.

Vefsíða druslugöngunnar í Reykjavík og Facebook-síða göngunnar á Ísafirði.




Tengdar fréttir

Druslugöngur líka á Ísafirði og í Reykjanesbæ

Ákveðið hefur verið að halda Druslugöngur á Ísafirði og í Reykjanesbæ þann 23. júlí, sama dag og Druslugangan verður farin í Reykjavík. Líklegt þykir að fleiri Druslugöngur verði farnar á landinu þennan dag. Á Ísafirði ætla þátttakendur að ganga frá gamla sjúkrahúsinu að Silfurtorgi. Þá verður stoppað við kirkjuna, héraðsdóm, lögreglustöðina og sýslumannsembættið. Við lok göngunnar tekir við stutt athöfn á Silfurtorgi. Gangan hefst klukkan tvö. Á sama tíma hefst Drusluganga í Reykjanesbæ. Þar er ætlunin að hittast hjá Nettó, ganga niður Hafnargötuna og enda í skrúðgarðinum. Nánari dagskrá hefur ekki verið útfærð. Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur. Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglumanns í Toronto í Kanada sem sagði að konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki nauðgað.

Drusluganga í Reykjavík

Drusluganga verður farin í Reykjavík þann 23. júlí. Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur. Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglustjórans í Toronto, Michael Sanguinetti, sem sagði á háskólafyrirlestri að "konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki fórnarlömb." Sanguinetti baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Konum í Toronto var engu að síður misboðið og skipulögðu gönguna sem fór fram í apríl á þessu ári. Þar var konum uppálagt að klæða sig eins druslulega og þeim þóknaðist, í þágu kynferðislegs frelsis. Konur um allan heim hafa tekið hugmyndinni fagnandi. Þegar hafa margar druslugöngur verið farnar um víða veröld og enn fleiri sem hafa verið skipulagðar, meðal annars í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Ástralíu og Suður-Afríku. "Við höldum að þetta sé málefni sem snerti alla, ekki bara konur, þrátt fyrir að nafnið Drusluganga sé vissulega með tilvísun í það að konur eigi að geta klætt sig og hagað sér eins og þeim sýnist án þess að það sé "ávísun" á að vera nauðgað," segir Anna Jóna Heimisdóttir, ein af skipuleggjendum göngunnar. Hún segir það einmitt oft vera viðkvæðið, bæði í fjölmiðlum og samfélaginu almennt, að konur geti sjálfar sér um kennt þegar þær eru beittar kynferðislegu ofbeldi ef þær voru klæddar á ögrandi hátt. Fyrsti fundur skipuleggjenda Druslugöngunnar var í gærkvöldi og var þá bæði ákveðið að þýða nafnið á þennan hátt, sem og dagsetningin sem gangan verður farin.

5000 druslur í London

Skipuleggjendur "druslugöngunnar" í London segja að hátt í 5.000 manns hafi tekið þátt í göngunni í dag en þar mátti sjá konur arka um strætin í netasokkabuxum og brjóstarhöldurum, undir slagorðum á borð við "Brjóstaskora er ekki samþykki".

Eitt þúsund manns í druslugöngu í Sidney

Um eitt þúsund manns tóku þátt í druslugöngu í miðborg Sidney í Ástralíu í dag til að berjast gegn fordómum í tengslum við klæðaburð kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×