Innlent

Lögregluútkall vegna hávaða í borholu

Íbúar í grennd við hverasvæðið við Hveramörk í Hveragerði eru orðnir svo langþreyttir á hávaða frá borholu Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu, að þeir hringdu í gærkvöldi í lögreglu til að kvarta undan hávaðanum.

Þótt lögreglan sé alvön að fara í hávaðaútköll og stilla til friðar tókst það ekki þetta skiptið enda við önnur og meiri öfl að fást, en drukkna tvífætlinga. Það verður því bæjaryfirvalda í Hveragerði að ræða við Orkuveituna, um að stilla til friðar í Hveramörkinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×