Erlent

Ný rannsókn á embættisverkum Berlusconi

Ný rannsókn er hafin á embættisverkum Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu.

Í þetta sinn er hann sakaður um að hafa misnotað vald sitt til að þvinga ríkissjónvarpsstöðina RAI til að leggja niður sjónvarpsþátt þar sem Berlusconi var harðlega gagnrýndur.

Þátturinn hét AnnoZero og fjallaði um pólitísk málefni. Berlusconi fékk þáttinn sleginn af árið 2009. Fyrrum forstjóri RAI og fyrrum yfirmaður fjölmiðlaeftirlits Ítalíu eru einnig til rannsóknar í þessu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×