Innlent

Innbrot í pitsustað í Grímsbæ

Brotist var inn í pitsustað í verslunarmiðstöðinni Grímsbæ í Fossvoginum í Reykjavík í nótt og þaðan stolið skúffunni úr sjóðsvélinni með skiptimynt og fleiru.

Þjófurinn braut rúðu í útidyrum og komst þannig inn. Hann komst óséður undan og er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×