Innlent

Gamall reykkofi brann til grunna

Gamall reykkofi við bæinn Bitru i Kræklingahlíð, norðan Akureyrar, gjöreyðilagðist í eldi í gærkvöldi.

Þar var verið að taðreykja silung, þegar eldur varð laus. Slökkviliðið á Akureyri kom á vettvang og slökkti eldinn, en þá var kofinn ónýtur.  Hann stóð fjarri öðrum húsum þannig að engin hætta var á ferðum. 

Ekki er vitað af hverju eldurinn fór úr böndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×