Erlent

Mikil hitabylgja hrjáir Bandaríkjamenn

Mikil hitabylgja hrjáir nú íbúa í mið- og suðurhluta Bandaríkjanna. Alls hafa 13 manns látist vegna hennar.

Veðurstofa landsins hefur gefið út viðvörun til íbúa í ríkjunum frá Texas til Vestur Virginíu. Talið er að hitinn verði 38 gráður að jafnaði á þessum slóðum næstu daga. Hitanum fylgir mikill raki en búist er við að hitabylgjan færi sig yfir í austurhluta Bandaríkjanna á næstu dögum og að hún verði viðvarandi í landinu út þennan mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×