Innlent

Lokað þinghald í Heiðmerkurmáli

Maðurinn kyrkti barnsmóður sína í Heiðmörk
Maðurinn kyrkti barnsmóður sína í Heiðmörk
Þinghald verður lokað í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk fyrr á þessu ári.

Saksóknari fór fram á lokað þinghald og var samið um að það yrði raunin. Þingfesting málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness klukkan tvö.

Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna.

Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí.

Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram.

Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×